Boatman taskan er með svakalegt geymslupláss, alls 55 lítra, er gríðar sterkbyggð og troðfull af allskyns eiginleikum sem snúa að veiði.
Hún er án efa skrefinu á undan öðrum töskum.
Í efsta hólfinu er hægt að geyma fluguhjól og spólur í fóðruðum og snyrtilegum hólfum sem hægt er að stilla eftir hentugleika.
Gúmmínet á vösum hindra að önglar og krókar nái að krækjast í töskuna og flugugeymslan, sem kemur í yfirstærð, gerir það að verkum að hægt er að skipta um flugu án nokkurra vandkvæða.
- Að fullu vatnsheld með EVA varnarhimnu.
- Fjölnota báta-hillu kerfi.
- Hönnuð með hólfum fyrir fluguhjól, spólur og annað veiðidót.
- Risa flugugeymsla úr svampi sem hægt er að fjarlægja.
- Regnvörn.
- Sérstakur vasi fyrir afgangstaum og taumarusl.
- Þil úr Neoprene til þægindarauka fyrir mjóbak.
- EVA handföng.
- Stillanlegar festingar fyrir 2 stangarhólka ofan á töskunni.
- Gúmmínet á vösum sem önglar og krókar festast ekki í.
- Mjúkir Velcro flugupúðar á ytra byrði.
- Stöm axlaról sem rennur ekki.
- Vasar fyrir veiðidót bæði að innan og utan.
- Framleidd úr 1680D nælonefni.