Roller Bag taskan frá Guideline kemur með sterkum, hörðum botni og öflugum AT hjólum sem detta ekki af þó farið sé í utanvegaakstur. Hið gríðarlega stóra lok töskunnar, sem hægt er að opna alveg, ver aðal rennilásinn fyrir öllu hnjaski. Á toppi töskunnar er einnig stór, gegnsær og veðurþolinn vasi. Stór og öflug handföng á hliðum svo hægt sé að bæði halda á töskunni og draga hana á eftir sér.
Inni í töskunni eru strappar svo hægt sé að læsa niður farangrinum þegar taskan er ekki fullhlaðin.
Það eru einnig 3 rúmgóðir netvasar á innanverðri töskunni. Hún rúmar allt að 150 lítra en vegur einungis 4.2kg, sem gerir hana að einni stærstu og léttustu langferðatösku í sínum klassa á markaðnum í dag. Taskan hefur nægjanlegt rými til að bera 4 hluta stangir sem eru upp að 10 fet.
- Öflugur harður botn með AT hjólum
- Stærð: 83 cm x 44 cm x 42 cm.
- Þyngd: 4,2 kg.
- Rými: 150 lítrar
- Litur: Dökkgrá með svörtum og appelsínugulum áherslum