110 Folding Hunter – Sígildur, klassískur og uppáhald margra! Folding Hunter frá Buck var hannaður árið 1963 þegar Al Buck ákvað að byltingarkenndur, læstur hnífur, væri eitthvað fyrir útivistarmanninn sem vildi traustan og góðan hníf en vildi ekki vera með hníf með föstu blaði. Hann hafði rétt fyrir sér og niðurstaðan reyndist lykillinn að framtíð fyrirtækisins. Áskorunin var að sameina styrk lokuðu hnífanna með læsingu í fallega og áreiðanlega vöru. Það var ekki auðsótt en eftir nokkrar tilraunir var 110 hnífurinn afhjúpaður. Innan 6 mánaða var þessi útfærsla heitasti hnífurinn á markaðnum. Folding Hunter er ennþá, eftir rúm 50 ár, einn mest seldi hnífurinn í Ameríku.
Eins og hann var upphaflega kynntur á sjöunda áratug síðustu aldar er 110 Folding Hunter enn og aftur með handfang úr Ebony harðvið. Þessi Crelicam (teg. af mynsturgerð) Ebony viður kemur úr endurgróðursettum trjám frá Congo Basin regnskóginum og færir Buck Knifes ekta harðvið sem er nánast óslítandi.
Eilífðarábyrgð
Buck Knifes ábyrgjast hvern einasta Buck hníf gegn göllum í efni eða framleiðslu, allan líftíma hnífsins og munu gera við eða skipta út með nýjum hníf, eftir þeirra mati, hvaða Buck hníf sem er. Buck Knifes ábyrgjast ekki skemmdir vegna venjulegrar notkunar, misnotkunnar eða breytingum sem gerðar hafa verið á hnífnum. Buck Knifes hnífarnir eru ekki ætlaðir sem hamrar, meitlar, kúbein eða skrúfjárn.
EIGINLEIKAR | LÝSING |
---|---|
Lögun blaðs: | Drop Point |
Lengd blaðs: | 9.5cm |
Lengd lokaður: | 12.4cm |
Þykkt blaðs: | 3mm |
Þyngd: | 205gr |
Gerð stáls: | 420HC ryðfrítt stál |
Handfang: | Crelicam Ebony Viður með brass styrkingum |
Festing: | Svart hulstur úr ekta leðri |