Byggður á velgengni Triple-D skothausanna. Mjókkunin (taper) á belgnum (belly) er mjög öflug og er hönnuð fyrir tvíhendur sem eru 13 fet eða lengri. Þeir snúa og kasta stórum flugum með einstaklega auðveldum hætti. Allir 4D skothausar eru byggðir með tvöfaldan þéttleika sem ásamt 4D endunum gerir þér auðveldara fyrir að kasta og menda línuna. Þéttari framhlutinn hjálpat til við sökkva endanum og flugunni á rétt dýpi. Þess vegna, samanborið við hefðbundna skothausa með einum þéttleika, kastar maður 4D línum með meiri mýkt og áreynsluleysi. Þar að auki, vegna þess að aftari hluti belgsins situr hærra í vatninu en framhlutinn, hjálpar 4D línan þér að stjórna framreiðslunni á flugunni og minnkar hnökra á miðlínunni. Hin mikla heildarstýring og tilfinning fyrir flugunni og fisknum nýtur enn meira góðs af Direct Core (kjarninn) sem hefur aðeins 6% af teygju og allt að 42 punda slitstyrk – einn af sterkustu tvíhandar-línukjörnunum á markaðnum.
Auðveld samsetning:
Bæði 4D hausar og 4D endar eru litakóðaðir til að tryggja rétta samsetningu á haus og enda. Þú einfaldlega setur saman sama litinn fyir framan lúppuna á haus og enda og færð þá fullkomna uppsetningu (sjá töflu). T.d. appelsínugulur haus passar við hvaða enda sem hefur appelsínugult fyrir framan lúppuna.
Upplýsingar:
- Tvöfaldur skothaus með sterka veltu og skotgetu
- Slitsterkar klæddar lúppur á báðum endum
- Prentað linuauðkenni fyrir fljóta auðkenningu
- Litakóði til að passa við haus og enda
- Tilvalið fyrir stangir sem eru 13 fet eða lengriI
4D hugtakið:
- Hámarks dýptarstýring
- Auðvelt að taka upp línunar og bætt kastgeta
- Aukin línustýring og sveifluhraði
- Dregur úr hnökrum á miðlínu
Gerð | Hausþyngd | Flotbúkur | Litakóði enda |
---|---|---|---|
4D Body – DH #7/8 | 20g / 310 grains | 6,0m | Gulur |
4D Body – DH #8/9 | 23g / 360 grains | 6,0m | Appelsínugulur |
4D Body – DH #9/10 | 26g / 400 grains | 6,5m | Grænn |