Ahrex Flexistripper stripp karfan er einföld í notkun og frábær valkostur. Þegar hún er borin saman við hefðbundnar stripp körfur, þá hefur Flexistripper ýmislegt framyfir, meðal annars það, að á Flexistripper eru engar hliðar og því ekki eins og maður sé með bala framan á sér.
STAÐSETNING
Fyrir hægrihandar kastara er besti staðurinn fyrir Flexistripper körfuna aðeins til til vinstri og fyrir vinstrihandar kastara aðeins til hægri. Og hversu mikið til vinstri eða hægri er mjög persónubundið en í miklum hliðarvindi getur þú fært Flexistripper körfuna enn lengra til hliðar til að verjast vindinum.
Undir venjulegum kringumstæðum er beltið haft um mjaðmirnar en þegar vaðið er dýpra, skaltu færa Flexistripper körfuna ofar svo hún sé upp úr vatninu.
Kemur með hágæða stillanlegu neoprene belti svo einfalt sé að breyta staðsetningu.