Orðspor og gæði sem á engan sinn líka í yfir 25 ár
Í yfir 25 ár hefur Galvan verið farsælt Bandarískt fjölskyldufyrirtæki, alltaf fylgt nýjustu tækni en hefur aldrei misst sjónar af hinni hefðbundnu ástríðu okkar og fluguhjólum. Og enn þann dag í dag framleiðir Galvan fjölskyldan enn hágæða fluguhjól úr öllum bestu fáanlegu efnum í Bandaríkjunum. Samsetning hjólanna fer einnig fram í Bandaríkjunum þar sem þau fara í gegnum strangt gæðaeftirlit áður en þau fara í hendur fluguveiðifólks til eignar inn í eilífðina.
Hið einstaka Torque fluguhjól, fjórða serían frá Galvan, var fyrsta hjólið sem kom með Torque bremsukerfinu, sem núna er í öllum hjólum Galvan. Upphafið var í kringum 2002 og komu fyrstu útgáfur á sjónarsviðið árið 2003. Og eftir heilmiklar prófanir og endurbætur kom það fyrst á markað árið 2004 og vann undir eins titilinn "2004 Editor’s Choice" hjá Fly Fish America og varð númer 3 í shootout samanburðarkönnun Yellowstone Anglers fyrir 8wt fluguhjól þar sem það bar af til samanburðar við fjölmörg önnur hjól.
Árið 2016 varð Galvan í fyrsta sæti í samanburðarkönnun Yellowstone Anglers þar sem 5wt fluguhjól voru borin saman!
Torque - gæði í gegn
Galvan Torque fluguhjólin er hin sterka uppistaða Galvan fluguhjólaseríunnar sem hefur verið á markaðnum frá því árið 2004, en árið 2021 kom nýendurskoðað og fullkomið bremsukerfi frá þeim – Torque bremsukerfið. Torque bremsukerfið er þekkt fyrir einstaklega mjúka gangsetningu og fínstillingu. Þetta tryggir að hægt er að stöðva flóttatilraunir sterkra fiska án þess að taumurinn gefi sig.
Kerfið byggir á diskabremsu framleitt úr hitaplasti og koltrefjum og er nánast viðhaldsfrítt vegna þeirrar tækni sem notuð er. Sama er að segja um innvolsið þar sem venjulega er uppsett kúlulega er hér notuð háklassa “State of the art” High Pressure Velocity plastfóðring. Fóðringin kemur algerlega í stað legunnar og hefur þann góða kost að ryðga ekki og er nánast nýningsfrí. Veiði í rigningu eða jafnvel sökkt í vatn er því einnig minna vandamál, ólíkt öðrum hjólum. Húsið og spólan á Torque hjólinu voru hönnuð með Maximum Porting tækni. Þetta er ferli sem notar nýjustu CAD og CNC tækni til að ákvarða minnstu mögulegu þyngd án þess að tapa stöðugleika. Allt þetta gerir Torque hjólið afar létt, en samt gríðarlega sterkt og útbúið með mjög öflugu bremsukerfi.
Galvan Torque hjólið er í raun tímalaust, einstaklega öflugt og nánast viðhaldsfrítt fluguhjól sem hefur margsannað sig í ferskvatnsstraumvatni, á ströndinni, eða í saltvatnsveiði á suðrænum slóðum. Hér mætir nýjasta tækni hefðbundinni, léttri og látlausri hönnun.
Tækniupplýsingar:
Maximum Porting
Maximum Porting hjá Galvan stendur fyrir fullkomnun frá tveimur heimum! Lágmarksþyngd með hámarksstöðugleika. Galvan leggur mikla áherslu á styrkleika og stöðugleika í framleiðslunni en veit líka að í heiminum í dag þarf þetta ekki alltaf að vera þungt í framkvæmd. Með nýjustu CAD tækni og nákvæmum útreikningum er óþarfa þyngd sem ekki stuðlar að virkni eða stöðugleika hjólsins fjarlægð!
L.A.D.
Large Arbor hönnun. Hraður inndráttur / línuupptaka er mikilvægur punktur í öllu fjörinu þegar þú þarft að koma öllum slakanum á línunni inn á hjólið á sem skemmstum tíma en á yfiveguðum máta. Og á sama tíma má hjólið ekki vera of stórt eða of þungt, þannig að Galvan finnur alltaf góða málamiðlun með nákvæmum útreikningum.
Low-Cof
Low-Cof tæknin frá Galvan byggir á bremsukerfi hjólsins og tryggir að ræsiviðnám bremsunnar sé einstaklega mjúkt.
EZ-Grab
EZ-Grab hönnunin á handföngum spólunnar á Galvan hjólunum hefur íhvolfa lögun sem þykknar út á við. Kosturinn hér er að þegar snúið er með afli rennur höndin ekki út af og þú ert alltaf við stjórnvölinn.
MicroTune
MicroTune stillingarkerfi bremsunnar er með einni kúlulegu sem mætir litlum dældum sem eru unnar inn í hjólagrindina sjálfa til að halda viðeigandi bremsustillingu tryggilega á sínum stað. Þessar þægilegu inndældir gerir þér kleift að stilla bremsuna í þrepum og draga þennig úr líkum “óviljandi” stilling fyrir slysni á meðan veiðum stendur.
R-Retrieve
Auðvelt og fljótlegt að breyta fyrir hægri eða vinstri inndrátt
T2
Öll hjól og spólur frá Galvan eru T2 anodiseruð með lágmarks efnis snertipunkta sem gerir þau tæringarþolin og saltvatnsörugg.
Í hnotskurn:
- Hágæða, nútíma fluguhjól framleitt af Galvan, California USA
- Létt og öflugt fyrir fersk- og salt-vatnsveiði
- Stórt og opið spóluþvermál tryggir góða loftun og snöggan inndrátt
- Smíðað úr hágæða 6061 álblokk
- Framleitt og samsett í USA
- Auðvelt og fljótlegt að breyta fyrir hægri eða vinstri inndrátt
MÓDEL | LÍNA | ÞYNGD | GETA |
---|---|---|---|
T4 | #3 ~ 4 | 127gr | WF4 + 120m 20lbs undirlína |
T6 | #5 ~ 6 | 147gr | WF6 + 135m 20lbs undirlína |
T8 | #7 ~ 8 | 215gr | WF8 + 180m 20lbs undirlína |