Hér er hægt að finna svör við ýmsum algengum spurningum sem við höfum fengið.
Þessi listi er kannski ekki tæmandi, en listar niður svör við mörgum spurningum sem eru algengari en aðrar.
Áður en haft er samband við okkur væri sniðugt að kíkja yfir þessar spurningar og svör því hugsanlega eru svör við þínum spurningum hér.
Að öðrum kosti tökum við við spurningum þínum fagnandi og leitumst við að svara eins fljótt og mögulegt er.
Hvernig er með póstburðargjöld á pöntunum?
Við bjóðum fríar póstsendingar um land allt ef verslað er fyrir kr 9000,- eða meira. Hægt er að velja á milli sendingum með Íslandspósti eða Dropp.
Flugubúllan tekur aldrei ábyrgð á sendingartíma póstþjónustuaðila, en í flestum tilvikum ætti sendingin að berast á 1 til 2 dögum.
Hver ber ábyrgð á vörum í flutningi?
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp. Flugubúllan ekki ber aldrei neina ábyrgð á tjóni sem vara kann að verða fyrir í flutningi eftir að varan er send frá Flugubúllunni og þar til viðtakandi tekur við henni. Ábyrgð vörunnar í flutningi er alltaf hjá póstþjónustuaðila.
Hvaða greiðslumáta er boðið uppá í versluninni?
Allar vörur eru fluttar með Íslandspósti eða Dropp.
Í þeim tilfellum sem vara er sótt til Flugubúllunnar að Hlíðasmára 13, Kópavogi, er boðið upp staðgreiðslu við afhendingu vöru, og er þá hægt að greiða með reiðufé, og öllum helstu greiðslukortum. Athugaðu þó að starfsmaður Flugubúllunnar mun hafa samband við þig áður en vörurnar geta verið sóttar.
Í þriðja lagi er boðið uppá að leggja upphæðina inn á bankareikning Flugubúllunnar, Reikningur: 515-26-70916 | Kennitala: 670916-0810 | Banki: Íslandsbanki. Athugið þó að pöntunin verður ekki send af stað fyrr en við sjáum greiðsluna í heimabanka.
Greiðsla verður að berast fyrir pöntun innan 24 tíma frá pöntun. Að öðrum kosti verður pöntun bakfærð og lokuð.
Hvað tekur langan tíma að fá pöntunina?
Allar pantanir eru sendar samdægurs, eða næsta virka dag eftir pöntun.
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti eða Dropp, og gilda þá allir skilmálar flutningsaðila um afhendingu, en í flestum tilvikum tekur flutningur 1 ~ 2 virka daga.
Einnig bíður Flugubúllan viðskiptavinum sínum uppá að sækja verslaðar vörur, og er þá hægt að fá afhent samdægurs í flestum tilvikum.
Hversu öruggt er að versla á vef Flugubúllunnar?
Greiðslugátt Salt er varin með öruggri 128bita SSL dulkóðun sem gerir það að verkum að ógjörningur er fyrir utanaðkomandi að nálgast nokkrar upplýsingar sem upp eru gefnar í verslunarferlinu.
Hvernig er með skilarétt á vörum sem eru verslaðar?
Hægt er að hafa samband við okkur hjá Flugubúllunni í póstfangið info@flugubullan.is til að fá nánari upplýsingar.
Hvað eru biðpantanir?
Yfirleitt er um að ræða vörur sem eru í pöntun frá framleiðanda, ný-ókomnar vörur, eða vörur sem pantaðar eru reglulega.
Starfsmenn Flugubúllunnar munu vera í sambandi eftir að pöntun hefur verið gerð til að láta vita um áætlaðan afhendingartíma.
Einnig er hægt að vera í sambandi við Flugubúlluna áður en pöntun er gerð til að fá uppgefið um áætlaðan afhendingartíma.
Er hægt að sérpanta vörur sem ekki eru til sölu almennt?
Starfsmenn Flugubúllunnar munu vera í sambandi eftir að pöntun hefur verið gerð til að láta vita um áætlaðan afhendingartíma, og/eða gefa svör vegna umbeðinna vara.
Aðrar almennar upplýsingar
Flugubúllan heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Flugubúllan áskilur sér rétt til að breyta verðum í vörulista án fyrirvara, og öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Flugubúllan áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.