ALMENNT
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verðum í vörulista án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
ÖRYGGI Á VEFSÍÐU
Greiðslur í gegnum greiðslugátt Teya (SaltPay) eru gerðar á öruggan hátt en vefurinn er varinn með öruggri 128bita SSL dulkóðun sem gerir það að verkum að ógjörningur er fyrir utanaðkomandi að nálgast nokkrar upplýsingar sem upp eru gefnar í verslunarferlinu.
SKILARÉTTUR OG ÁBYRGÐ
Hægt er að hafa samband við okkur hjá Flugubúllunni í póstfangið info@flugubullan.is til að fá nánari upplýsingar.
AFHENDING VÖRU
Sendingarkostnaður vegna skila á vörum þegar um er ræða fatnað/skó sem ekki passar er á kostnað kaupanda og á það einnig við um almennar endursendingar sem ekki eru vegna galla, skemmda á vöru eða ef röng vara var send. Endursendingakostnaður vegna gallaðra, skemmdra og rangt afgreiddra vara er á kostnað Flugubúllunnar.
Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp. Flugubúllan ber aldrei neina ábyrgð á tjóni sem vara kann að verða fyrir í flutningi eftir að varan er send frá Flugubúllunni og þar til viðtakandi tekur við henni. Ábyrgð vörunnar í flutningi er alltaf hjá póstþjónustuaðila.
Leitast er við að senda pantanir næsta virkan dag eftir að pöntun er staðfest.
GREIÐSLULEIÐIR
Allar vörur eru fluttar með Íslandspósti eða Dropp. Þegar valið er um að sækja pöntun í verslun þá er sendur tölvupóstur á uppgefið netfang þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.
Í þriðja lagi er boðið uppá að leggja upphæðina inn á bankareikning Flugubúllunnar, Reikningur: 515-26-70916 | Kennitala: 670916-0810 | Banki: Íslandsbanki. Pöntunin verður ekki send af stað fyrr en staðfesting á greiðslu er komin. Pantanir sem ekki eru greiddar innan sólarhrings frá staðfestingu pöntunar falla sjálfkrafa niður.
BIÐPANTANIR
Yfirleitt er um að ræða vörur sem eru í pöntun frá framleiðanda, ný-ókomnar vörur eða vörur sem pantaðar eru reglulega.
Starfsmenn Flugubúllunnar munu vera í sambandi eftir að pöntun hefur verið gerð til að láta vita um áætlaðan afhendingartíma.
SÉRPANTANAIR
Til að fá frekari upplýsingar um vörur og/eða ganga frá sérpöntun er best að hafa samband við okkur hér https://www.flugubullan.is/hafdu-samband/ og tilgreina vöru, týpu og týpunúmer, sem er að finna á hverri vörusíðu fyrir sig eða óskir eru fyrir.
Sérpantanir eru í flestum tilvikum ekki í boði á útsöluverðum eða tilboðum en upplýsingar um slíkt fást hjá starfsmönnum Flugubúllunnar.
Starfsmenn Flugubúllunnar munu vera í sambandi eftir að pöntun hefur verið gerð til að láta vita um áætlaðan afhendingartíma og/eða með upplýsingar um umbeðnar vörur.