Black and Blue er uppáhald margra reyndra veiðimanna á Íslandi en flugan inniheldur suma þeirra bestu og jafnframt veiðnustu liti í sinni einföldustu mynd; svart, blátt, gult, gull og silfur – sem eru einstaklega góðir litir í tærum ám eins og flestar íslenskar laxveiðiár eru. Stærsti lax ársins 2006 kom á Black and Blue og síðan þá hefur hún orðið staðalbúnaður í mörgum fluguboxum laxveiðimanna á Íslandi.
Hér er hún hnýtt á einkrækju.