Þessar einstöku bung ‘flugur’ fljóta eins og korktappi en oddhvasst skott. Þetta er í raun og veru tökuvari með áföstum öngli – hversu stórsniðugt er það!
Hversu oft hefur maður ekki lent í því að fiskurinn leitar í tökuvarann í stað púpunnar sem undir er?
Og það góða er að Fario hefur þróað uppbyggingu á þessum bung tökuvörum með króknum inn í þannig að það er nánast ómögulegt að skemma þær.
Frábært til að veiða í þegar fer að skyggja og í myrkri – lýstu með vasaljósi í smástund á bung-inn til að hlaða. Hann lýsist upp eins og ljósastaur.
Elskaðu þá eða hataðu – en ekki sleppa því að hafa nokkra í boxinu.