NRX+ er hönnuð til að jafna samkeppnina á bakkanum og vinna bug á erfiðum umhverfisþáttum eins og viðvarandi vindi eða flóknum vatns- og vökvakerfum svo að veiðimaðurinn nái fram hámarks afköstum.
NRX+ er framleidd með fullkomnustu frammjókkun á stangarbútum til þessa. Og það er þessi framleiðsla sem veitir kraft, línuhraða og stöðuleika línulúppunnar sem búast má við frá nútímalegum hröðum stöngum, en án þess að minnka “tilfinninguna” og fínleikann í stuttu köstunum. Þetta þýðir, án tillits til kastfjarlægðar eða erfiðra aðstæðna, að NRX+ styrkir veiðimenn og veitir aukið sjálfstraust við erfiðar aðstæður.
Stangarhlutar:
Dynamic Recovery Technology – Ný stangatækni frá G.Loomis sem sameinar alveg nýtt Mega Modulus+ grafít bindiefni og GL8 plastefniskerfi til að búa til stangarparta með skarpri mýkt og ótrúlegri nákvæmni. Einnig notar G.Loomis háþróað samsetningarferli til að gera NRX+ stangarseríuna fjölhæfari, endingarbetri og öflugri en nokkur önnur á markaðnum. Stangarhlutarnir er ótrúlega léttir með miklum leiðréttingarhraða og óviðjafnanlegri mýkt.
Lykkjur:
Titanium SiC Stripping lykkjur – Stripping lykkjur úr titanium veitir NRX+ endingu og lágmarkar allan núning. Lykkjurnar eru gerðar til að vera léttar og án þess að fórna krafti, stífni eða afköstum.
Svart Nikkel/Titanium einspinna lykkjur – Einspinna lykkjur eru gerðar til að vera léttar og minnka allan núning miðað við snákalykkjur. Hægt er að rétta einspinna lykkjurnar á NRX+ stöngunum til baka ef þær bogna eða kremjast. Sífellt fleiri framleiðendur eru að skipta úr snákalykkjum yfir í einspinna lykkjur, og af góðri ástæðu.
Hjólsæti:
Tvöföld læsing og sérsniðið hjólsæti – Minni NRX + stangirnar eru með sérsniðnu valhnotuhjólsæti með tvöfaldri læsingu. Valhnotuhjólsætið er einstaklega fallega dökkt, með djúpbrúnum lit sem gefur NRX+ stöngunum dálítinn klassískan blæ. Stærri stangirnar eru með hjólsæti úr áli, og fight butt fyrir bardaga við stærri fiska.
Stangarhólkur:
Álhólkur – Eins og allar hágæða G.Loomis stangir, koma NRX+ stangirnar í álhólk og taupoka til að verja stöngina í flutningum eða á ferðalögum.
Virkni stangar: Hröð
Handföng:
Full-Wells með fight butt:
Full-Wells:
Samatekt yfir eiginleika NRX+ S:
• Einspinna lykkjur
• Titanium SiC strip lykkjur
• Fluguhald (Línur #: 4-6)
• Micro full wells, AAA grade kork handföng
• Sérsniðið hjólsæti úr áli með valhnotu (Módel: 490-4, 590-4, & 595-4)
• Sérsniðið hjólsæti úr áli með fight butt (Módel: 4100-4, 5100-4, 690-4, & 6100-4)
• Stangarhólkur úr áli og taupoki utan um stangarhlutana
• Handsmíðaðar í Woodland, Washington, USA
• S línan hentar fullkomnlega bæði fyrir veiði í sjó og ferskvatni
MÓDEL | LÍNÞYNGD | LENGD | HLUTAR | VIRKNI | HANDFANG |
---|---|---|---|---|---|
NRX+ S 790-4 | #7 | 9’ | 4 | Hröð | B |
NRX+ S 890-4 | #8 | 9’ | 4 | Hröð | B |
NRX+ S 990-4 | #9 | 9’ | 4 | Hröð | B |
Allar G.Loomis flugustangir sem verslaðar eru hjá Flugubúllunni bera fullkomna 10 ára ábyrgð frá framleiðanda. Ef óhapp gerist færðu engar óþægilegar spurningar og þú greiðir ekki umsýslugjöld… okkur er einungis umhugað að þú fáir stöngina þína í lag eins fljótt og hægt er svo þú getir skellt þér í annan veiðitúr.
|