GEGGGJAÐ PAKKATILBOÐ MEÐ G.LOOMIS NRX+ SWITCH STÖNG, GUIDELINE REACH FLUGUHJÓLI OG MACKENZIE SWITCH LÍNU
NRX+ er hönnuð til að jafna samkeppnina á bakkanum og vinna bug á erfiðum umhverfisþáttum eins og viðvarandi vindi eða flóknum vatns- og vökvakerfum svo að veiðimaðurinn nái fram hámarks afköstum.
G. Loomis bættu við Switch og tvíhendum til að fullkomna NRX+ seríuna og það er óhætt að segja að þær séu með þeim bestu sem fáanlegar eru. Notuð er sama tækni í uppbyggingu á stangarpörtunum og í öðrum NRX+ stöngum og eru þessar tvíhendur kraftmiklar, fjölbreyttar og henta fyrir allar aðstæður. Þessar stangir voru hannaðar í samstarfi við hinn goðsagnakennda Steelhead veiðileiðsögumann Tom Larimer og kastsnillinginn Steve Rajeff og eru án efa með bestu tvíhendum sem fáanlegar eru.
Stangarhlutar:
Dynamic Recovery Technology – Ný stangatækni frá G.Loomis sem sameinar alveg nýtt Mega Modulus+ grafít bindiefni og GL8 plastefniskerfi til að búa til stangarparta með skarpri mýkt og ótrúlegri nákvæmni. Einnig notar G.Loomis háþróað samsetningarferli til að gera NRX+ stangarseríuna fjölhæfari, endingarbetri og öflugri en nokkur önnur á markaðnum. Stangarhlutarnir er ótrúlega léttir með miklum leiðréttingarhraða og óviðjafnanlegri mýkt.
Lykkjur:
Titanium SiC Stripping lykkjur – Stripping lykkjur úr titanium veitir NRX+ Spey/Switch stöngunum endingu og lágmarkar allan núning. Lykkjurnar eru gerðar til að vera léttar og án þess að fórna krafti, stífni eða afköstum.
Harðkróm snákalykkjur – Tvíhendurnar í NRX+ seríunni koma með harðkróm snákalykkjum sem stýra línunni vel, fyrir þröngan baug og lengri köst. Þessi sería af stöngum hentar einstaklega vel þegar notaðar eru þykkar spey línur og skothausar.
Hjólsæti:
Tvöföld læsing og sérsniðið hjólsæti – Hið sérsniðna ál-hjólsæti á NRX+ Spey/Switch stöngunum er gert til að halda þyngstu tvíhenduhjólunum, og til að þola hverskonar tæringu og veður. Allar stangirnar koma með AAA grade kork á handföngunum.
Stangarhólkur:
Álhólkur – Eins og allar hágæða G.Loomis stangir, koma NRX+ Spey/Switch stangirnar í álhólk og taupoka til að verja stöngina í flutningum eða á ferðalögum.
Virkni stangar: Hröð
Handfang:
Switch:
MÓDEL | LÍNÞYNGD | LENGD | HLUTAR | VIRKNI | HANDFANG |
---|---|---|---|---|---|
NRX+ 7110-4 | #7 | 11′ | 4 | Hröð | Switch |
NRX+ 8110-4 | #8 | 11′ | 4 | Hröð | Switch |
UM HJÓLIÐ:
Reach fluguhjólin eru ekki eingöngu frábærlega verðlögð miðað við frammistöðu, heldur koma þau með nútímalegri hönnun og mjög sterku bremsukerfi sem venjulega er ekki hægt að finna í hjólum á þessu verði. Hið sannreynda bremsukerfi Reach hjólanna hefur verið þróað og aðlagað frá dýrari fluguhjólum Guideline sem hægt er að fínstilla með stórum bremsuhnappi. Það skiptir engu máli hvaða fisk þú ert að fara að veiða í nágrenninu, þú getur treyst bremsunni í Reach hjólunum 100%.
Og jafnvel ef þú ferð að eltast við fisk í söltum sjó, s.s. sjóbirting, þá getur þú hiklaust notað Reach fluguhjólið þar sem bremsukerfið er algerlega þétt og er því tilbúið fyrir slíka veiði. Frábært hjól fyrir alla þá sem ekki vilja kafa of djúpt í vasann.
Þessi large arbor hjól eru steypt úr hágæða áli til að tryggja gæði og fölskvalausa virkni, og koma með CNC áferð. Með large arbor hönnuninni á þessum léttu hjólum getur maður dregið hratt inn og minnkað líkurnar á flækjum. Opin grindarhönnun hjólanna flýtir fyrir þornun á flugulínunni eftir veiðar.
Með Reach hjólunum hefur Guideline núna sýnt fram á að áreiðanlegar veiðigræjur þurfa ekki að vera dýrar og kemur hér með nútímalegt fluguhjól sem hentar fyrir einhendur frá línuþyngdum 5 til 9.
Í hnotskurn:
- Nútímalegt hjól þar sem þú færð mikið fyrir peninginn
- Nákvæmt, mjúkt bremsukerfi
- Stór bremsuhnappur fyrir fínstillingu
- Koltrefjabremsukerfi
- Vinstri eða hægri inndráttur
- Nútímaleg hönnun
- Large Arbor hönnun
- Litur: svartur / appelsínugulur
UM LÍNUNA:
Vegna aukinna vinsælda Switch stanga, lagði Mackenzie Fly Fishing áherslu á að hanna hina fullkomnu Switch línu. Með því að byggja á þekkingu frá þeim allra bestu í Spey köstum, færir teymið þér stolt Switch línu sem er þróuð með nýjustu framleiðslutækni. Þessi nýja lína skarar fram úr, hentar í smáar til miðlungsstórar ár og er fullkominn fyrir alla kasthæfileika.
Tvöföld belghönnun hjálpar til við að halda æskilegri þyngd í D-lúppunni, fyrir fullkomnar, skarpar lúppur í hvert skipti og auka belgur tryggir mjúkan orkuflutning í framhlutann.
Fáanleg í eftirfarandi stærð:
- #7/8, 25.5g
- Haus 35ft
- Lína 120ft
Í hnotskurn
- Stöðug og nákvæm köst
- Sérmótuð aukahúðun býr til þrengri lúppur fyrir fullkomna veltu
- Framlengd mjókkun á aftari hluta veitir óviðjafnanlegan stöðugleika
- Áberandi litabreyting á milli haus og running línu
- Endingargóð húðun