Guideline 4D endarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega á móti 4D Body skothausunum.
Þeir passa einnig á móti svipuðum skothausum frá öðrum framleiðendum með því að bera saman helstu tölur.
Allir endarnir með sökkeiginleika hafa 2 sökkhraða (double density) til að sökkslóðin í vatninu verði bein og áhrifarík. Þeir vinna ótrúlega vel þegar þeir eru notaðir á móti réttum búk og taumlengd.
Endarnir eru litakóðaðir á endunum svo einfalt er að finna út hvaða enda er hægt að nota á móti hvaða búk.