Laxá vöðlurnar vinsælu frá Guideline hafa verið uppfærðar með vatnsheldum TIZIP Master Seal rennilás að framan.
Framleiddar úr sterku 4-laga nylon efni með 20000mm vatnsheldni og 5000g/m2/24 klst rakafærsluhimnu. Umhverfisvæn, án PFOA, DWR yfirborðsmeðferð hrindir frá óhreinindum og vatni af ytri skelinni. Innsaumarnir á vöðlunum eru fjarlægðir með Sidewinder™ hönnuninni frá Guideline sem leiðir af sér góða hreyfigetu og þægilega mátun.
Vatnsheldur TIZIP Master Seal rennilásinn að framan eykur hreyfanleika, þægindi og styrk, auk þess sem auðveldara er núna að fara í og úr vöðlunum.
Hátt við brjóstkassann eru tveir stórir, vatnsheldir vasar með rennilásum og bak við þá eru flís fóðraðir vasar til að hlýja sér á höndum.
Stillanlegar axlarólar, þrjár sterkar beltislykkjur ásamt teygjanlegu og stillanlegu vöðlubelti.
Við kálfa eru sterkar og þykkar sandhlífar með gúmmístyrkingu á teygjulínungunni.
Sérskornir neoprene sokkarnir eru með háa þéttni, passa vel og eru vinstri/hægri lagaðir til að auka þægindi.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Öndun | 5000 |
Litur | Granít |
Efni | Fjögurra laga Nælon Taslan |
Vatnsheldni | 20000 |
Rennnilás | vatnsheldur TIZIP Master Seal rennilás |