NT11 flugustangir eru afrakstur þess að nýta nýjustu og fullkomnustu SOA (State of Art) grafítefnin sem notuð eru í flug- og geimiðnaðinum í dag.
Þegar þessi efni eru notuð í flugustangir næst fram frábær ávinningur. Mest áberandi er ótrúlegur endurheimtarkraftur og stöðugleiki í þynnunum sem skapast með því að sameina kraftmikil og styrkaukandi áhrifin frá T1100 grafít með þynnum af grafíti úr hæsta gæðaflokki sem Guideline hefur notað til þessa. Fyrir veiðimenn þá eru þessir ofangreindir eiginleikar byggðir í röð af flugustöngum sem hafa minnstu þyngdina, en samt hæsta brotstyrkinn af öllum stöngum hjá Guideline, og líklega á öllum flugustangarmarkaðnum.
Þessar stangir eru auðveldar í notkun með “Full flex – Medium/Fast” (full sveigja-meðalhröð) virkni og topp sem er stífur en samt nógu næmur til að gera þær líflegar og skemmtilegar að kasta með án þess að þurfa að einblína á fullkomna tímasetningu á kastinu. Þær hlaða djúpt og framkvæma aukin línuhraða þegar kallað er eftir því. Þrátt fyrir að viðhalda tilkomumiklum lyftikrafti á sökklínum mun þessi djúpa en hraða virkni henta fjölbreyttum köstum, línum og kaststílum. Eftir margra ára framleiðslu á hágæða, léttum og sterkum 6 hluta stöngum og vitandi að engin afsláttur er gefinn þegar kemur að frammistöðu, styrk, þyngd eða jafnvægi, þá er það sjálfsagt og eðlilegt að þessi nýja lína af stöngum sé líka marghluta og þannig afar þægilegar í flutningi. Guideline lagði afar hart að sér og með það að leiðarljósi að halda verðmæti þessara stanga að fullu án þess að fórna gæðum í framleiðslu eða íhlutum.
STANGARTEGUNDIR
Þessar þrjár einhendur eru miðlungs/hraðar með fullri sveigju og henta mjög vel fyrir venjuleg köst sem og Scandi- og Skagit- kaststíl. Hannaðar aðallega fyrir skotahausa en virka afar vel með WF línum með stutta skothausa eins og ULS og Bullet
10’ #6 14-16 gr/215-245 grains
Stöng í urriða, sjóbirting og lax í minni ám með litlum og meðalstórum flugum. Virkar ótrúlega vel með ULS kerfinu frá Guideline í línuþyngd #6/7 (16gr) og með ULS 6/7 Multi tip WF línu er þessi stöng með fullkomna uppsetningu. Stöngin höndlar einnig 3D Compact hausa í 17gr afar vel en er þá kominn að efri þolmörkum stangarinnar, sérstaklega ef búið er að setja stóra túpu eða straumflugu undir.
10’ #7 17-19 gr/260-290 grains
Sennilega besta 10 feta sjöan sem Guideline hefur búið til! Þægilegri stöng fyrir stærri ár og lengri köst heldur en 10´ #6 Hún höndlar einnig vind og stærri flugur á auðveldan hátt. Þessi stöng elskar að vera sett upp með 4D Compact Multi Tip #7/8 SH 19gr og kastar líka mjög vel 3D Compact 17gr og 19gr hausum. Fyrir þá sem vilja samþætta skotlínu þá er ULS WF Multi Tip í #7/8 (18gr) frábær kostur.
10’ #8 19-21 gr/290-220 grains
Þessi stöng mun aldrei bregðast þér! Fullkomin stórfiska-einhenda í lax og sjóbirting. Krafturinn í þessar stöng er svakalegur og þú þarft að upplifa hann til að skilja um hvað málið snýst. Létt í hendi með ótakmarkaða eiginleika til að slást við stóra fiska og skila afbragðs köstum. Hún er fínstillt til að vinna með 4D og 3D Compact línukerfin frá Guideline í 19 til 21 gr glugganum en mun ráða við 23 gr línur fyrir þá sem vilja frekar Skagit kastkerfi.
Í HNOTSKURN
- T1100 CAP tæknin er styrkur, frammistaða og áreiðanleiki án málamiðlana.
- NT11 stangirnar koma með fallegum FLOR korki í handföngum og “fighting butt” sem eru með sérstyrktum duftkork allra neðst. FLOR korkur er hágæða korkur með háum þéttleika og styrk sem mun standast tímans tönn og halda fegurð sinni.
- Stripplykkjur með titaniumhúð. Hágæða ryðfrítt stál í lykkjum.
- Hjólsætin eru sérhönnuð af R&D (rannsókn&þróun) teyminu hjá Guideline, með harðri rafhúðun og mjög rispuþolinni hálfmattri áferð.
- Áferð stangarinnar er matt satínáverð með djúpri kolagrárri húðun sem gefur þeim lágstemmt, klassískt en ekki of áberandi útlit.
- Allar lykkjur eru vafðar með dökkgráum þræði og í kringum stripplykkjur og logomerkingu er fíngerðar bláar línur.
- Allar NT11 stangir koma í léttum og sterkum stangarpoka úr 4 þátta teygjunæloni og stangarhólk úr polycarbon sem er klæddur með sterku polyester efni með leðurbút með Guideline logoinu.
- 25 ÁRA UPPRUNALEG EIGENDAÁBYRGÐ. NT11 flugustangir eru með 25 ára ábyrgð til upprunalegs eigenda. Þessi ábyrgð nær til galla í efni og/eða framleiðslu. Á ábyrgðartímabilinu (frá kaupdegi) á kaupandi rétt á viðgerð eða endurnýjun (metið af Guideline) á skemmdum eða gölluðum hlutum stangarinnar. Ef stangartegundin er hætt í framleiðslu og/eða ekki er hægt að laga eða skipta um stangarhluta, mun Guideline skipta út stönginni fyrir sambærilega stöng (að mati Guideline).
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
MÓDEL | LENGD | ÞYNGD | HLUTAR | LÍNUÞYNGD | HANDFANG | LEIÐBEINANDI HAUSÞYNGD |
---|---|---|---|---|---|---|
NT11 1006 | 10´ | 105gr | 4 | #6 | Full wells/Butt | 14-16gr / 215-245 grains |
NT11 1007 | 10´ | 107gr | 4 | #7 | Full wells/Butt | 17-19gr / 260-290 grains |
NT11 1008 | 10´ | 109gr | 4 | #8 | Full wells/Butt | 19-21gr / 290-330 grains |