Patagonia Black Hole stangartaskan er afar snjöll stangar- og hjólataska þar sem hægt er að geyma mikilvægustu græjurnar á öruggan og þægilegan hátt. Að innanverðu er hún 91cm löng og getur þannig tekið 4 hluta einhendur allt að 11 fetum (3.35m) og flestar 5 og 6 hluta tvíhendur. Hægt er að skipuleggja töskuna að innan að eigin þörfum með því að færa til þilin eins og hverjum og einum hentar. T.d. er hægt að hafa stangir á annarri hliðinni og allt annað í minni hólfum s.s. fluguhjól, flugubox o.m.fl. Fleirri möguleikar eru í boði, því það eru 2 vasar að innanverðu með rennilásum og 2 að utanverðu einnig með rennilásum. Þarna kemur sér vel að geyma taumaefni, flugulínur o.þ.h., allt skipulagt í þaula á öruggan hátt.
Þessi öfluga stangartaska er gerð úr sterku, endurunnu polyester efni sem er einnig með endurunninni TPU lagskiptri húðun. Þetta gerir töskuna afar endingargóða og hún verður langtímaeign hvort sem er á bakkanum, á ferðalagi eða bara í skottinu á bílnum. Taskan kemur með þægilegri bólstraðri axlaról en er einnig með handfangi á miðri töskunni.
Í stuttu máli þá er Patagonia Black Hole stangartaskan öflug og traust taska til að flytja og geyma stangir, fluguveiðihjól og aðra fylgihluti, með 91cm innri lengd og 4 rúmgóða vasa með rennilásum.
Í hnotskurn:
- Örugg og öflug stangartaska fyrir flugustangir og fylgihluti
- Gerð úr endingargóðu 300 denier endurunnu polyester efni
- Húðuð með sterku, endurunnu og lagskiptu TPU
- Innri lengd töskunnar er 91cm, sem er nóg fyrir 4 hluta einhendur allt að 11 fetum (3.35m)
- Hentar einnig fyrir flestar 5 og 6 hluta tvíhendur
- Einingaþil sem hægt er að færa til og sérsníða þannig skipulag
- 4 stórir vasar með rennilásum; 2 að innanverðu og 2 að utanverðu
- Stillanleg og bólstruð axlaról og handfang í miðju
- Fair Trade Certified™ framleiðsla
- Þyngd: 2636gr
- Litur: Buckhorn Green