Hlýjir og afar þægilegir vettlingar/lúffur með opnum lófa, auðveldir í notkun og einangra þegar þeir blotna. Auðvelt að koma fingrum úr hlíf til að skipta um flugur, strippa eða klóra sér á nefinu.
Í hnotskurn:
- Efni: 2.5mm 85% Yulex® náttúrulegt gúmmí /15% tilbúið gúmmí miðað við fjölliða innihald. 95% polyester (51% endurunnið) / 5% spandex microgrid.
- Hlýja í vatni: Yulex® er notað í blautbúninga frá Patagonia og heldur höndunum heitum og einangruðum jafnvel þegar þær eru blautar.
- Hönnun: Einföld og snjöll hönnun sem heldur handarbaki einangruðu og þegar þörf krefur er auðvelt að frelsa fingur fyrir fluguskipti eða aðra nákvæmnisvinnu.
- Stærðarlýsing: Vettlingurinn fer vel rúmlega yfir úlnlið sem eykur einangrun til muna.
- Fjölhæfni: Hanskarnir eru hannaðir þannig að hægt er að kasta með og án fingurhlífanna.
- Stuðningur við fólkið sem framleiddi þessa vöru: Fair Trade Certified