Sterkur, vatnsheldur vöðlujakki með öndun, tilbúinn fyrir verstu aðstæðurnar.
Swiftcurrent vöðlujakkinn er gerður úr sterku 4-laga, H2No vatns- og vindheldri skel og húðaður með DWR vatnsfráhrindandi efni með mikla endingu.
YKK Vislon Aquaguard rennilásinn er vatnsheldur og tæringarþolinn.
Straumlínulagaðir framvasar fyrir allt það nauðsynlegasta eru með gott aðgengi.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Litur | Tide Blue |
Efni | Fjögurra laga H2No vatns- og vindheld skel með DWR |
Þyngd | 700gr |
Rennilásar | YKK Vislon og Aquaguard |