Patagonia Swiftcurrent Expedition Zip Front vöðlurnar eru öflugar vöðlur til að takast á við sterkustu straumana og eru einstaklega þægilegar. Þær eru gerðar úr H2No vatnsheldnisefni með góða vatnsheldni og öndun. Þú munt hafa mikla hreyfigetu í þessari nýju hönnun frá Patagonia. Hæðarstilling er auðveld með bólstruðum axlarólum til að auka þægindi allan daginn. Það eru nóg af vösum fyrir alla litlu hlutina þína og innbyggðir vasar til að hlýja sér á höndunum. Vertu þurr og hafðu það þægilegt við veiðar í Swiftcurrent Expedition Zip Front vöðum.
Tæknilegar upplýsingar:
- Endingargott H2No® vatnsheldnisefni, endurunnin Polyester microfiber skel með vatnsheldni/öndunar þröskuld og DWR (durable water repellent – endingargóð vatnsfráhrinding) húðun.
- Byggðar með einföldum saum fyrir betri endingu og klofbót fyrir meiri hreyfanleika og þægindi.
- Algjörlega vatnsheldur YKK® rennilás; stillanlegar, fljót-losanlegar axlarólar; belti úr öruggri teygju og lykkjur að framan og aftan fyrir beltið.
- Innra skipulag: Vatnsheldur vasi sem er hægt að kippa fram; tvær línur fyrir tæki eða tól; miðhanki að aftan til að hengja vöðlurnar upp til þerris.
- Ytra skipulag: Tveir vasar til að hlýja sér á höndum.
- Framsettar skálmar; hnépúðar sem hægt er að fjarlægja; öflugar sandhlífar yfir ökkla.
- Vinstri og hægri fótar hönnun á sokkum með minna rúmmál og meiri sokkalögun til aukinna þæginda við lengri íveru.
VÖÐLUSTÆRÐIR
STÆRÐ | MITTISMÁL (CM) | KLOFMÁL (CM) | SKÓSTÆRÐ (UK) | LÍKAMSHÆÐ | |
---|---|---|---|---|---|
SSS | Small – Short length | 94 | 74 | 5.5-7.5 | 165-173 |
SRM | Small – Regular length | 94 | 81 | 8.5-10.5 | 178-183 |
MXM | Medium – Extra Short Length | 102 | 71 | 8.5-10.5 | 157-165 |
MSM | Medium – Short Length | 102 | 76 | 8.5-10.5 | 168-175 |
MRM | Medium – Regular Length | 102 | 81 | 8.5-10.5 | 178-183 |
MRL | Medium – Regular Length | 102 | 81 | 11-13.5 | 178-183 |
MLM | Medium – Long Length | 102 | 86 | 8.5-10.5 | 185-193 |
MLL | Medium – Long Length | 102 | 81 | 11-13.5 | 185-193 |
LSM | Large – Short Length | 112 | 76 | 8.5-10.5 | 168-175 |
LRM | Large – Regular Length | 112 | 81 | 8.5-10.5 | 178-183 |
LRL | Large – Long Length | 112 | 81 | 11-13.5 | 178-183 |
LLM | Large – Long Length | 112 | 81 | 8.5-10.5 | 185-193 |
LLL | Large – Long Length | 112 | 81 | 11-13.5 | 185-193 |
XSM | X-Large – Short Length | 122 | 76 | 8.5-10.5 | 168-175 |
XRM | X-Large – Regular Length | 122 | 81 | 8.5-10.5 | 178-183 |
XRL | X-Large – Regular Length | 122 | 81 | 11-13.5 | 178-183 |
XLL | X-Large – Long Length | 122 | 86 | 11-13.5 | 185-193 |
2RM | XX-Large – Regular Length | 132 | 81 | 8.5-10.5 | 178-183 |
3LL | XXX-Large – Long Length | 142 | 86 | 8.5-10.5 | 185-193 |
Foot Tractor frá Patagonia eru virkilega vandaðir og vel byggðir vöðluskór, með öflugan stuðning og vernd fyrir krefjandi aðstæður og einhverjir endingarbestu vöðluskórnir á markaðnum; með Vibram® Idrogrip sóla sem hefur grip fyrir nánast allar aðstæður. Þróaðir í samvinnu með Danner® og handunnir í Portland, Oregon, USA.
Hágæða leður: Endingarmikið, vatnshelt, hágæða leður með PFC fríu sútunarferli til að bæta viðnám við niðurbroti, jafnvel í saltvatni; leðrið er hægt að meðhöndla til endurnýjunnar. Byggðir til að endast: Sterkur 1000 denier Nylon panill veitir framúrskarandi slitþol.
Þægileg og auðveld reimun: Reimarnar fara í gegnum augu á ristinni og eru með hraðreimingu yfir ökklann; Reima-augu og -festingar eru nylonhúðaðar til að koma í veg fyrir tæringu.
Fljót vatnstæming/Fljót þornun: Frábær útfærsla á vatnstæmingargötum á báðum hliðum losar vatn fljótt og örugglega. Til að stytta þurrkunartíma þá er efri hlutinn án óþarfa svamps eða aukaefna.
“Stitchdown” bygging: Stitchdown bygging skapar víðari flöt sem gefur meiri stöðugleika, hjálpar til við að vernda hliðarnar á skónum og gerir Danner® kleift að skipta um sóla.
Nánari upplýsingar um byggingu: Formað bi-fit borð sameinar bygginguna á skónum í eitt stykki sem dregur úr þyngd án þess að fórna þægindum og stuðning. Sóli: Vibram® Idrogrip sóli er þróaður fyrir hámarks grip á blautu yfirborði og öðrum krefjandi aðstæðum á löngum dögum og við mismunandi aðstæður í straumvatni; það er hægt að negla sólann.
Framleiðsluland: Framleiddir í Bandaríkjunum.
Þyngd: 1,950 gr.