Nano Silk er sennilega besti GSP þráðurinn á markaðnum – punktur! Ofur sterkur og einhver bestu gæði sem hægt er að fá. Engar áhyggjur af því að þráðurinn slitni – það er hægt að treysta á Nano Silk þráðinn.
Nano Silk Pro 20D er faglega talið það besta af sinni tegund. 20D er einnig þekkt sem 24/0 – sem er virkilega smátt. Verandi barn í Nano Silk fjölskyldunni þá hefur það þann styrk sem ætlast er til af þessum hágæða þræði. Hann er 10 sinnum sterkari en stál með sama þvermál. Nano Silk Pro 20D er nógu fínn á önglastærðir #20 til #32. Fáanlegur í svörtu og hvítu og 100m á hverri spólu. Ef einhver þorir, þá er hægt að splitta þessum ofur-fína þræði enn frekar ef þörf er á, þannig að dubb á #32 er orðinn möguleiki.
Nano Silk Pro 20D er hannaður fyrir micro flugur niður í stærð #32 Hann er samt jafn sterkur og 8/0 polyester þráður en er aðeins 1/20 af þvermálinu. Hann er hægt að nota á hvaða flugu sem er, þar sem þráðurinn má ekki vera sýnilegur.
Nano Silk Pro 20D kemur á hvítum spólum til að aðgreina hann frá öðrum Nano Silk þráðum. Muna bara að nota bobbin-höldu með keramiki.
Þar sem Nano Silk leggst fullkomlega flatur á öngulinn, hleðst þráðurinn ekki upp.
- 24/0 20 denier þráður.
- Slitþol er 750g / 26oz (1.65lb).
- Fullkominn á önglastærðir #20 til #32
- Leggst fullkomlega flatur og hleðst ekki upp, sama hversu mikið er vafið.
- 10 sinnum sterkari en stál með sama þvermál.
Fagráð:
1 – snúa rangsælis til að snúa ofan af og leggja fullkomlega flatt. Með aðeins 2 til 3 snúningum af Nano Silk yfir svamp eða önnur efni er hægt að binda fast án þess að skera efnið.
2 – nota hvítt Nano Silk og einfaldlega lita síðustu 10cm/4″ á þræðinum fyrir hausa í sýnilegum litum.
Það eru ekki allir GSP þræðir af sama styrk og þeir eru gefnir upp fyrir. Semperfli notar bestu hágæða efni sem fáanleg eru í þráðinn til að koma í veg fyrir flækjur og að hann sé mýksti og sterkasti GSP þráðurinn á markaðnum. Hægt er að fara á Global Fly Fisher Thread Chart og sjá sannleikann með eigin augum.
Það eru u.þ.b. 100m (109 yards) á hverri spólu.
Athugið: Með öllum GSP þráðum, þ.m.t. Nano Silk Pro 20D, ætti alltaf að nota bobbin höldu með keramic.