Peeping Caddis Body Wool
Peeping Caddis Body ull er fullkomin í peeping caddis. Áreiðanlegt búkefni sem er fljótlegt og auðvelt í notkun. Með því að hita aðeins endan er hægt að nota hann sem haus á caddis fluguna.
Semperfli Oliver Edwards Rhyacophila Wool – eftirlíking
Ullin frá Oliver Edwards var notuð í mörg ár með góðum árangri. Hún var hætt í framleiðslu en teymi hjá Semperfli átti sýnishorn og teymið ákvað að búa til efni sem væri nákvæmlega eins og upprunalega efnið frá Oliver. Teymið trúir því að varla sé hægt að komast nær hinni upprunalegu Rhyacophila ull.
Chadwicks 477 – eftirlíking
Þetta er nákvæmlega ullin sem nota á í hina klassísku Killer Bug flugu sem hin goðsagnakenndi púpusérfræðingur Frank Sawyer gerði. Þessa flugu ætti aðeins að hnyta með einni tegund af ull; Chadwick´s 477. Semperfli átti spjald af upprunalegu ullinni sem þeir notuðu til að búa til nákvæma eftirlíkingu og er hún ein sú besta sem er að fá.
Perfect Shrimp Wool
Perfect Shrimp Wool stendur undir nafni. Gæti ekki verið auðveldara. Þetta var hannað til að líkja eftir shrimp (rækju) -hnýtingarmynstri með bleikflekkótu mynstri, fullkomið í shrimp (rækju) flugur.