Mikael Frödin hefur í gegnum árin átt í góðu samstarfi við verksmiðju Georgio Benecchi á Ítalíu og hefur notað þræði þeirra í þúsundir flugna. SSS hnýtingarþræðirnir eru þessir gömlu, góðu, gæða hnýtingarþræðir frá Benecchi. Þeir eru sterkir, teygjanlegir og fletjast ótrúlega vel út þegar hnýtt er með þeim.
Að mati Frödin eru þetta langbestu hnýtingarþræðir sem framleiddir hafa verið, prófaðir og sannreyndir í tugi ára – og nú enn betri og endurkynntir til leiks!
GLOW þráðurinn er einn af tveimur ‘sérstökum’ þráðum sem Frödin býður upp á. Glow er phosphorescent og er þessvegna sýnilegur í myrkri.