Sennilega ein allra vinsælasta litasamsetningum fyrir lax á heimsvísu? Willy Gunn er hnýtt í ýmsum afbrigðum en það er aðallega litirnir sem vísað er í. Verulega sterkt mynstur snemma í laxinn og einnig afar góður kostur ef vatnið er aðeins litað.
TS tvíkrækjur
Það er alltaf sérstök tilfinning að setja klassíska tvíkrækju undir, fegurð og fullkomið jafnvægi gera þær einstakar á að líta, bæði fyrir veiðimenn og líka fyrir fiskinn. Þær eru einstaklega “veiðnar” og eru hér í 8 mismunandi mynstrum fyrir jafnmargar aðstæður.
TS er skírskotun til Tellis Katsogiannos sem er mikill laxveiðimaður og hann valdi þessar 8 mismundandi flugur sem eru allt hans uppáhaldsflugur. Allt fræg og þekkt mynstur hnýttar með stíl sem Tellis kýs; léttklæddar, sparlega notað af efni og flassi og hnýttar á hágæða japanskar tvíkrækjur sem hafa margsannað sig að vera afar sterkar og beittar.