„Þessi svarta og græna fluga er núna eftir meira en 20 ár í algeru uppáhaldi hjá mér og mörgum af mínum vinum. Klassísk samsetning sem hér er þyngd og mun áfram ná í flotta fiska. Ég veiði þessa sjálfur með M eða S flúrósent FITS túpu til stýringar, til að halda utan um krókinn og sem skrokk. Í tæru vatni og á skýjuðum degi getur hún gert kraftaverk. – Mikael Frödin“
TTT NOBODY SERÍAN
TTT Nobody er túpufluga með engum búk og hnýtt á Tungsten Turbo Tube. TTT ( Tungsten Turbo Tube ) er einföld, áhrifarík og endingargóð lausn í þessari seríu. Bæði gefur TTT flugunni nokkra þyngd sem og að flugan opnast betur og gefur henni fallegan sundprófíl. Flugan er notuð laus á taumnum fyrir framan stuttan túpubút sem er notaður til að festa krókinn og virkar sem stýring. Ráðlagt er að nota medium FITS túpuefni fyrir krókinn. Hægt er að nota mismunandi lengd á túpuefnið og mismunandi liti, og gera þannig fluguna mjög áhrifaríka fyrir mismunandi aðstæður.
Eiginleikar
- Breið uppsetning
- Tungsten Turbo Tube og micro turbo keila
- Notuð með lausum krók
- Hægt að nota með ýmsum litasamsetningum
- Þyngd og lífleg sundfluga