„Lítil Sillen á flot túpu er banvænt á sólríkum degi. TTT útgáfan gefur þér færi á að leita í hröðu vatninu án þess að láta hana skauta. Stærri flugurnar muna skera hvítt vatnið og finna fiskinn. Í „bláu vatni“ er Sillen best, og jafnvel í kristaltæru vatni. Ég nota ýmsar FITS stýritúpur, t.d. silfur, clear og glow, en kannski er sú besta flúró blá. – Mikael Frödin“
TTT NOBODY SERÍAN
TTT Nobody er túpa með engum búk og hnýtt á Tungsten Turbo Tube. TTT ( Tungsten Turbo Tube ) er einföld, áhrifarík og endingargóð lausn í þessari seríu. Bæði gefur TTT flugunni nokkra þyngd sem og að flugan opnast betur og gefur henni fallegan sundprófíl. Flugan er notuð laus á taumnum fyrir framan við stuttan túpubút sem er notaður til að festa krókinn og virkar sem stýring. Ráðlagt er að nota medium FITS túpuefni fyrir krókinn. Hægt er að nota mismunandi lengd á túpuefnið og mismunandi liti, og þannig gert fluguna mjög áhrifaríka fyrir mismunandi aðstæður.
Eiginleikar
- Breið uppsetning
- Tungsten Turbo Tube og micro turbo keila
- Notuð með lausum krók
- Hægt að nota með ýmsum litasamsetningum
- Þyngd og lífleg sundfluga