„Hin hvíta-svarta-hvíta Zebra fluga er pimpuð gerð af Black & Silver. Fluga með flottari skerpu og viðhorf. Ég nota alltaf Zebra í tæru vatni, og nota bæði stórar og litlar. Ég nota einnig ýmsa stíla, TTT, Samurai eða hina feitu Classic, allt eftir því hvar ég er staddur við veiðar. Hana má ekki vanta í boxið. Sjálfur nota ég Pearl FITS stýritúpu eða svarta, en með þessu getur þú stillt túpuna af fyrir þær aðstæður sem þú ert í. – Mikael Frödin“
TTT NOBODY SERÍAN
TTT Nobody er túpa með engum búk og hnýtt á Tungsten Turbo Tube. TTT ( Tungsten Turbo Tube ) er einföld, áhrifarík og endingargóð lausn í þessari seríu. Bæði gefur TTT flugunni nokkra þyngd sem og að flugan opnast betur og gefur henni fallegan sundprófíl. Flugan er notuð laus á taumnum fyrir framan við stuttan túpupút sem er notaður til að festa krókinn og virkar sem stýring. Ráðlagt er að nota medium FITS túpuefni fyrir krókinn. Hægt er að nota mismunandi lengd á túpuefnið og mismunandi liti, og gera þannig fluguna mjög áhrifaríka fyrir mismunandi aðstæður.
Eiginleikar
- Breið uppsetning
- Tungsten Turbo Tube og micro turbo keila
- Notuð með lausum krók
- Hægt að nota með ýmsum litasamsetningum
- Þyngd og lífleg sundfluga